22september

Bara svona prófa..

... hvort ég nenni eitthvað að vera blogga...
Hingað til hef ég nú ekki nennt því og efast um að ég eigi eftir að nenna því áfram enda ekkert að gerast í mínu lífi til að blogga um..
En sjáum til bara sá einmitt að síðasta færslan mín er síðan Máni var tveggja ára og núna er hann nýorðinn 3 ára var einmitt að halda afmælisveilsu í dag Hlæjandi
En jæja ég ætlaði bara svona að prófa að sjá hvort ég nenni þessu eitthvað..

Heiða sem er skotin í strák sem býr langt langt í burtu Öskrandi
22. september 2008 klukkan 01:01

Engin athugasemd
18september

2 ára prins..

Í dag er prinsinn minn 2 ára.. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og barnið bara að verða fullorðið liggur við.. Ég man svo vel þennann dag fyrir nákvæmlega tveimur árum síðan.. :) Þið getið lesið allt um hann inná síðunni hans Mána..
Ég elska prinsinn minn meira en allt í heiminum og ég get ekki ímyndað mér hvernig lífið væri án hans....

18. september 2007 klukkan 22:32

2 athugasemdir
02september

Allt að gerast...

Já það má nú segja það að það sé allt að gerast..  Ég er hætt að vinna á Engjaborg þar sem ég er búin að vinna á í fimm ár.. Ég er að fara í skóla............ Já gott fólk Heiða er að fara í skóla Svalur Ég er að fara í Nýja tölvu og viðskiptaskólann... Á skrifstofu og tölvubraut.. Ég ætla svo að fá mér góða vinnu eftir áramót..  Ég byrja á morgun í skólanum.. Svo 21 september byrja ég að vinna með skólanum hjá ÍTR í Foldaskóla.. Gamli skólinn minn.. Bara gaman.. Mig hlakkar bæði til að byrja í skólanum og nýju vinnunni.. Svo er ég að fara til einkaþjáfara á þriðjudaginn og verð hjá honum í mánuð og svo er ég LOKSINS að fara læra á gítarinn minn.. Þannig að það er sko nóg að gera.. 

Jæja ætla að fara skella mér í rúmið.. SKÓLI á morgun..

Heiðan OUT
02. september 2007 klukkan 23:08

Engin athugasemd
20ágúst

Bara fyndið hahaha...

Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur
sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið
og taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju
rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið
og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman.
Ég geri þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína.
En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir
mér að hann sé svo glaður með það. Hann er þegar búinn að kaupa
hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af
eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo innilega sammála honum með það.
Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og
E-töflum handa okkur báðum.
En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!!
En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa.
Þar að auki er Ahmed orðinn orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera.
Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.

Þín dóttir Guðrún.

PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu skrifborðskúffunni.
Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim.
20. ágúst 2007 klukkan 23:20

1 athugasemd
10ágúst

Þoli ekki svona daga..

... þegar ég er alveg botnlaus og get étið endalaust án þess að verða södd... Og ég er auðvitað heima þannig að ég er að úða í mig alsskonar ógeði.. óhollu ógeði... Verð að fara taka mig á og hætta þessu sukki... Planið er að byrja á mánudagurinn.. Ætla að byrja þá og hætta að borða rusl á virkum dögum hafa bara nammidag einu sinni í viku.. Mér tókst það fyrr í sumar þá hlýtur mér að takast það núna.. Er alltof fljót að detta inní þetta sukk..
Ég var í vinnunni í morgun og auðvitað hringdi leikskólinn hans Mána í mig og drengurinn orðinn lasinn... Ekki gaman að hanga heima með veikt barn og ég er ekki frá því að ég sé eitthvað slöpp líka.. Það er 19 stiga hiti úti,, jamm 19 stiga hiti.. og mér er ískalt... Það er reyndar ekkert nýtt en samt manni er ekki kalt í 19 stiga hita..
Ég vildi svo að ég gæti verið áfram í BOOT CAMP enda skemmtilegasta líkamsrækt sem ég hef verið í.. Er að spá í að kaupa mér kort í einhverri ræktinni.. Verð að fara hreyfa minn feita rass....
Allavega þá veit ég ekkert hvað ég á að segja þannig að ég kveð..

Læt svo vita hvernig gengur að borða hollt....
10. ágúst 2007 klukkan 15:25

2 athugasemdir
18júlí

Mér leiðist svo hrikalega að ég ákvað að blogga aðeins...

Ég ætla að segja ykkur frá helginni 6 til 9 júlí...

Föstudagurinn 6 júlí var rosa fínn, ég var að vinna til hádegis og kom heim og  fór í sturtu og pakkaði niður fyrir mig og Mána.. Máni var að fara til pabba síns í langan tíma og ég var að fara til Akureyrar með Rósu... Elli kom að sækja Mána rétt um fjögur og ég kláraði að hafa mig til, ég sótti Rósu og við lögðum af stað til Akureyrar klukkan sex.. Fyrsta stopp var í Borganesi til að fá okkur kvöldmat.... Svo brunuðum við af stað og stoppuðum í Staðarskála til að pissa.. Svo var brunað beint á Akureyri.. Við fundum strax tjaldstæðið og plöntuðum okkur hjá Aftureldingu (það var sko fótboltamót).. Við settum tjaldið upp á no time og héldum svo í bæinn.. Við komum þangað og hittum strax 2 hressa stráka þá Felix og Kristján.. Okkur fannst við eitthvað ílla til fara þannig að við stukkum uppá tjaldstæði og skiptum um föt og okkur leið miklu betur Koss 
Við fórum á Sjallann og þar var bara alveg glatað þannig að við fórum á Kaffi Amor og vorum þar í soldinn tíma og fórum svo á Kaffi Akureyri þar var voða fínt, strákur laminn fyrir að sulla á mig bjór Öskrandi.. Planið hjá okkur var svo að fara daginn eftir í Ásbyrgi en allir voru að segja okkur að fara frekar á Stuðmenn í Sjallanum og fara í Ásbyrgi á sunnudeginum.. Við ætluðum að sjá til.. 
Við fórum að sofa um sex á föstudeginum og ég vaknaði um tíu, ég fór út í smá göngutúr og tékkaði hvort sundlauginn væri opin og hún var það auðvitað.. Ég fór til baka og vakti Rósu og við klæddum okkur og tókum til drasl og fórum og fengum okkur að borða og skelltum okkur svo í sund,, á meðan ég var að taka sunddótið til var skitið á bílinn minn þannig að ég færði mig til að vera ekki með töskuna í skítnum og hvað haldiði að hafi þá gerst,, þá var skitið á mig sem betur fer var ég á leiðinni í sund.. En eftir sundið fór ég í bæuðarrölt til að finna mér nýja peysu og ég keypti óvart tvær Saklaus Við ákváðum það svo að við skildum bara vera á Akureyri eina nótt í viðbót. Við kíktum svo í jólahúsið, rosa flott... Við tókum svo eftir því að peran að framan var sprungin og við fórum á N1 bensínstöðina til að skipta um peruna og strákarnir þar voru orðnir  þrír að reyna að skipta um peru þetta tók sko meira en klukkutíma,, það endaði með því að einn strákurinn hringdi í pabba sinn og bað hann að koma og redda þessu og hann gerði það á 2 mínutum...
Við fengum okkur svo kvöldmat og fórum svo uppá tjaldstæði og skiptum um föt og héldum í bæinn...  Við byrjuðum á Kaffi Amor og vorum þar til að verða eitt þá fórum við í Sjallann og skemmtum okkur rosa vel á Stuðmannaballinu, ég týndi Rósu og Felix og Kristján voru svo góðir að labba með mér uppá tjaldstæði, ég kíkti í tjaldið og engin Rósa þannig að ég settist bara inní skúr til hans Stinna tjaldvarðar og spjallaði við hann þangað til Rósa kom um hálf sjö,, hún var eitthvað að spjalla við einhvern strák þannig að ég sat hjá honum Stinna þangað til hann var búinn að vinna, það var sko farið að sofa klukkan hálf átta þennann morguninn.. Og auðvitað vaknað snemma eins og alltaf þegar ég er í tjaldi, vaknaði klukkan ellefu og við tókum saman draslið og tjaldið og fórum og fengum okkur að borða, skelltum okkur svo í Bónus að versla og brunuðum svo útúr bænum..
Við stoppuðum hjá Goðafoss, keyrðum síðan áfram og skoðuðum Hverafjall þar hittum við aftur Felix og Kristján.. Þar var tekið plan um að grilla saman í Ásbyrgi um kvöldið.. Við fórum svo og röltum um Dimmuborgir þar  er ekkert smá fallegt, við ætlum að koma þangað aftur um verslunarmannahelgina og labba þá stærsta hringinn.. Við skoðuðum jarðböðin og ætlum líka þangað um verslunarmannahelgina..
Við brunuðum svo í Ásbyrgi því það voru allir orðnir voða svangir.. Við skelltum upp tjaldinu og grilluðum kjúklingabringur.. Við löbbuðum aðeins um og settumst svo inní tjald og spjölluðum hellengi.. Felix var sofnaður og allt í einu gaf hann frá sér voða fyndið hljóð, reisti sig upp og sagði : I´M READY... Og við sprungum úr hlátri... Þetta var bara fyndið... Við fórum svo að sofa um eitt.. Ég auðvitað vaknaði snemma daginn eftir, ég vaknaði um níu og var sko búin að ganga frá öllu dótinu, klæða mig og borða morgunmat þegar liðið LOKSINS vaknaði...Þau drifu sig að hafa sig til og við tókum allt draslið saman og skoðuð Ásbyrgi enn meira og fórum að Botntjörn minnir mig að þetta heiti og það er ekkert smá fallegt þar... Við fórum þaðan í Hljóðakletta og þar er sko fallegt líka.. Þaðan fórum við að Dettifoss og kvöddum strákana þar eða allavega hann Kristján því Felix ætlaði að hitta okkur þegar hann kæmi í bæinn.. Við keyrðum til Húsavíkur og fengum okkur kvöldmat þar og skoðuðum reðursafnið fræga.. Við brunuðum svo á Akureyri og keyrðum beint heim, vorum sko seint á ferðinni,, vorum ekki komnar heim fyrr en eitt... Og ég þurfti að mæta í vinnu daginn eftir...

Þetta var rosa skemmtileg helgi.. Takk fyrir æðislega helgi Rósa, Felix og Kristján...
18. júlí 2007 klukkan 22:54

2 athugasemdir
27júní

Ekki að standa mig..............

...............í þessu bloggi, enda varla að nenna þessu.. Efast um að einhverjir séu að lesa þetta..Er að spá að loka þessu bara og vera bara á myspace www.myspace.com/heidahar miklu slemmtilegra..
Síðustu helgi fór ég til Vénýar og fékk þar geðveikt góðar barbique kjúklingabringur.. Seinna um kvöldið kom svo Beta og við fórum saman á djammið.. Rosa gaman og ég hitti fullt af fólki sem ég þekki og einn voða sætan strák Glottandi  Við spjölluðum líka við fullt af útlendingum hittum svía, norðmenn og írska fótboltastráka...
Á mánudagskvöldið kíkti ég til Orra og Þorsteins again fékk ég geðveikt góðar kjúklingabringur... og við spjölluðum heilmikið, alltaf gaman að kíkja þangað Hlæjandi
Svo er smá á planinu hjá mér á næstunni, alltaf gaman þegar það er..
* Næstu helgi ætlum við Véný og Beta að kíkja í bæinn og finna okkur sumarkjóla.
* Helgina 6-8 júlí ætla ég og Rósa að kíkja í Dimmuborgir og Ásbyrgi og eitthvað þar í kring.
* Máni verður svo hjá pabba sínum vikuna 9-15 júlí.. Ég er reyndar að vinna en ætla samt að nota kvöldin í eitthvað skemmtilegt, hitta vinkonur mínar á kaffihúsum eða réttara sagt því sama og alltaf Vegamót...
 * 14 júlí er út að borða og djamma með Véný og Betu og kannski að fleira fólk úr vinnunni fylgi með,, aldrei að vita..
* Alda og co frá Svíþjóð kemur svo í heimsókn og það verður brallað eitthvað með þeim.
* Svo fer ég í sumarfrí 16 júlí til 7 ágúst.
* Akureyri um verslunarmannahelgina.
* Kíkja til Tálknafjarðar í sumarfríinu.
* Svo er það Spánn vonandi í ágúst eða september..

Ekkert meira á planinu enn sem komið er...

GLEÐILEGT SUMAR HEIÐAN OUT
27. júní 2007 klukkan 22:10

1 athugasemd
29apríl

Karíókí og Amazing Race........

Jáhá það var sko fjör um helgina hjá mér.. Á föstudagskvöldið hitti ég stelpurnar frá Tálknafirði og við borðuðum geðveikt góðan mat sem Inga og Þóra elduðu.. Eftir matinn var haldið áfram að éta, nammi, snakk og kókosbollurétt.. mmmmmmmm............................ Við fórum svo að syngja og það var þvílíkt stuð hjá okkur.. Ég var komin heim um hálf þrjú og átti þá eftir að slétta á mér hárið og pakka niður fyrir óvssuferðina.. Pakkaði í snatri og var farin í rúmið klukkan þrjú.. Úff ætlaði að vaknað klukkan átta og slétta hárið en meikaði það ekki og svaf aðeins lengur og vaknaði rétt yfir níu og var þá orðin of sein til að slétta hárið því ég átti eftir að klæða mig og gera mig reddý fyrir opna húsið.. Það var semsagt opið hús í leikskólanum mínum.. Eftir opna húsið var pizza, gos og bjór í boði fyrir okkur.. Það var étið og sva var haldið af stað í óvissuferðina.. Við keyrðum frá Engjaborg og útúr Reykjavík,, við keyrðum í áttina að Mosó og fórum uppá Kjalarnes keyrðum að sundlauginni þar og þar fórum við allar út.. En það var bara plat því þetta var bara reykingarstopp fyrir þær sem reykja.. Við keyrðum svo beinustu leið á Akranes þar biðu okkar Hófý og Sigga... Þegar þangað var komið fengum við allar pakka og í pakkanum var buff og klútur þeir sem fengu eins liti áttu að vera saman í liði og það var einn úr hverju liði valinn sem foringi.. Og ég var foringinn í mínum hóp.. Þá var mér réttur ruslapoki og fór í keppni við hinar þrjár hver kmi fyrstur í mark,, ég var númer tvö til þrjú... En við fengum tösku númer þrjú..Við vorum semsagt að fara í Amazing Race leik.. Og það var svo gaman í þessum leik... Ég var með Elísabetu og Kareni í liði.. Við áttum að labba þvílíkar vegalengdir á Akranesi en við gerðum bara eitt snilldarráð,, húkkuðum okkur far og það voru tveir yndislegir strákar sem heita Oddur og Ingi sem keyrðu okkur út um allann bæ... Og við leystum allar þrautir sem átti að leysa og spöruðum sko ekki myndavélina enda unnum við keppnina :) Duglegar ekki satt.. Við fengum bikar að launum :)
Eftir þennann skemmtilega ratleik fórum við í sund í Bjarnalaug og þaðan í matinn á Galíto.. Auðvitað húkkuðum við far líka þangað.. Ég, Elísabet, Rakel og Erna og það var hann Siggi sem keyrði okkur þangað.. :) Erum snillingar í að húkkar far.. Því miður fór ég með batteríslausa myndavél með mér en ég ætla að fá myndirnar úr ratleiknum á disk og þá koma þær hér inn bráðum :)  Vonandi á morgun..
Jæja verð að fara sofa,, þetta er búin að vera frábær helgi.. :)

Heiðan OUT
29. apríl 2007 klukkan 23:07

1 athugasemd
24apríl

Allir að svara :)

1. Hvar hittir þú mig fyrst? 2. Hvert er aðal útlitseinkenni mitt að þínu mati? 3. Hvaða lýsingarorð passar best við mig? 4. Er einhver tónlist sem minnir þig á mig? 5. Hver er besta minning þín með mér? 6. Ef ég væri dýr, hvaða dýr væri ég? 7. Er ég vinur þinn? 8. Þykir þér vænt um mig? 9. Hvaða lit tengir þú við mig? 10. Hvar helduru að ég versli mér föt? 11. Hef ég gert eitthvað á þinn hlut? 12. Hver er stærsti kosturinn minn? 13. Hver er minn stærsti galli?
24. apríl 2007 klukkan 13:35

3 athugasemdir
19apríl

I´m a sweet alcoholic who will rock your world.............

\"\"\"\"\"\"\"\"\"\"\"\"\"\"

Take the first letter of your first name:

A-Boyish
B-Gorgeous
C-Pretty
D-Popular
E-Gangster
F-Girly
G-Dyke
H-Sweet
I-Retarded
j-Emotional
K-Beautiful
L-Fabulous
M-Slutty
N-Preppy
O-Hot
P- amazingg
Q-Punky
R-Hot
S-Sexy
T- Very Sexy
U-Ugly
V-Wonderful
W-Hott
X-Bitchy
Y-Under-appreciated
Z-Over-appreciated

Now the third letter in your middle name(if you dont have one use your last name):

A-beauty queen
B- Babe
C-Bitch
D-Obsesser
E- God (ess)
F-Pornstar
G-Queen/ King
H-Slut
I-Girl
J-Goth
K-Nerd
L-Sex god
M-Sex machine
N-Prick
O-Geek
P-Skank
Q-Crackwhore
R-Alcoholic
S-Prince (ess)
T-Whore
U-Cry Baby
V-Jackass
W-Punk
X-Scaredy-cat
Y-Coward
Z-Chocoholic

Now What Color Is the Shirt You Are Wearing:

Red- Who's Good With My Hands
purple- Who Looks At Porn 24/7
Orange- Who Likes It In The Butt
Yellow- Who Wants To Have Sex With You
Green- Who will do anything for Sex
Pink- Who Will Do Anything For Crack
blue- Who likes to strip
White- Who everyone wants to fuck
Brown- Who Wears Big Sunglasses
Black- Who will rock your world
Gray- who gives great head
None-who is a beast in bed

NOW REPOST THIS WITH THE NAME & STATEMENT YOU GOT
BEGINNING WITH " I'm a...

19. apríl 2007 klukkan 12:44

4 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Textareitur

Ég er ljóshærð og lögleg..
Leita mér af góðum gæja..
Já, höfum það á hreinu..
Heiðarlegann mann sem lætur eina nægja...

Prinsinn minn

Leit